Um KMÍ
Á döfinni

11.10.2024

Topp 10 möst frumsýnd

Kvikmyndin Topp 10 möst, í leikstjórn Ólafar Birnu Torfadóttur, er frumsýnd í íslenskum kvikmyndahúsum 11. október.


Myndin segir frá lífsleiðri miðaldra konu og hortugu flóttafangakvendi sem ferðast þvert yfir landið á vit ævintýranna meðan þær enn geta.

https://www.youtube.com/watch?v=msROtMEmL_Y

Með aðalhlutverk fara Helga Braga Jónsdóttir og Tanja Björk Ómarsdóttir.

Ólöf Birna skrifar einnig handrit myndarinnar. Framleiðandi er Óskar Hinrik Long Jóhannsson hjá Myrkva myndum. Meðframleiðendur eru Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson hjá Kisa production.