Tvær heimildamyndir deila aðalverðlaunum IceDocs
Alþjóðlegu heimildamyndahátíðinni IceDocs lauk sunnudaginn 21.júlí með verðlaunaafhendingu í Skemmunni við Breiðina á Akranesi.
Í ár deila tvær heimildamyndir aðalverðlaunum hátíðarinnar: The Silence of Reason eftir Kumjönu Novakovu og The Stimming Pool eftir hópinn The Neurocultures Collective.
The Silence of Reason eftir Kumjana Novakova (Norður Makedónía, Bosnía og Hersegóvína) er gerð upp úr myndefni úr réttarskjalasafni og vitnisburðum af ofbeldi og pyntingum kvenna úr Foča fangabúðunum í Bosníu-Hersegóvínu. Reynsla þeirra verður að sameiginlegum minningum sem kljúfa tíma og rúm.
The Silence of Reason.
Umsögn dómnefndar:
„Það er ómögulegt að líta framhjá þessari mynd, hún hefur djúpstæð áhrif sem vekur áhuga áhorfenda á mörgum stigum - tilfinningalega og líkamlega. Með skýrri listrænni sýn og nákvæmu handverki dregur hún upp á yfirborðið hrikalegan vitnisburð um hryllilega glæpi og ítrekaða notkun nauðgunar sem stríðsvopns. Kvikmyndagerðarmaðurinn lætur vitnisburð fórnarlamba nauðgana tala sínu máli og skapar rými fyrir persónulegar hugleiðingar í gegnum áberandi og kraftmikið form. Myndin umbreytir köldu, skrifræðislegu tungumáli á meistaralegan hátt í tilfinningalega upplifun sem lætur áhorfendanum líða eins og hann hafi verið kýldur í magann.“
The Stimming Pool.
The Stimming Pool er tilraunakennd og, á köflum, ævintýraleg mynd eftir Neuroculture collective, kollektívu fimm skynsegin listamanna, og Steven Eastwood (sem tók við verðlaununum) . Stimming Pool er óhefðbundið og listrænt sjónarhorn á hvað þarf til þess að komast skynsegin í gegnum óreiðukenndan heim, sem oft er fjandsamlegur þeim sem öðruvísi eru.
Umsögn dómnefndar:
„Með þessari einstaklega skapandi mynd erum við tekin í skynjunarrússíbanareið sem lætur okkur langa til að horfa á hana aftur um leið og þakkarlistinn rúllar. Með sinni einstöku nálgun og frásagnargáfu býður myndin okkur í ákaft ferðalag. Þessi skemmtilega mósaík veitir okkur innsýn í ótrúlega möguleika mannshugans þegar þeim er gefið frelsi til að vera einfaldlega við sjálf.“
Stuttmyndaverðlaunin hlaut myndin The Rooster Who Laid Eggs eftir Ninu Forman en myndin Torn eftir Simone Hart og Jón H.Geirfinnsson fékk sérstaka viðurkenningu.
Í ár voru í fyrsta sinn á IceDocs skipaðar tvær ungmennadómnefndar, sú eldri horfði á aðalmyndirnar í keppni og sú yngri horfði á stuttmyndir ætluðum yngri áhorfendum.
Verðlaun ungmennadómnefndar fóru til myndarinnar I'm Not Everything I Want to Be eftir Klöru Taskovsku og stuttmyndaverðlaun ungra áhorfenda fóru til Nelson the Piglet eftir Anneke de Lind van Wijngaarden.
Áhorfendaverðlaunin í ár hlaut Yrsa Roca Fannberg kvikmyndagerðakona. Áhorfendaverðlaun IceDocs eru veitt árlega til áhorfenda sem hefur sýnt elju og metnað við að sækja hátíðina.
Í umsögn hátíðarinnar í ár segir:
“Áhorfendaverðlaun hátíðarinnar í ár hlýtur áhorfandi sem sótt hefur hátíðina frá upphafi. Viðkomandi hefur verið óþreytandi í að bera hróður hátíðarinnar út fyrir bæjarmörkin. Hún hefur einnig unnið óeigingjarnt starf í þágu hátíðarinnar og skipulagt vinnusmiðju fyrir kvimyndagerðarfólk undanfarin ár samhliða hàtíðinni. Það er með virðingu og væntumþykju sem við veitum Yrsu Roca Fannberg áhorfendaverðlaunin Icedocs 2024”
Dómnefndir:
Dómnefnd aðalkeppni: Stephanie Fuchs, kvikmyhdaráðgjafi, Halla Kristín Einarsdóttir, heimildamyndagerðarkona og Oliver Serbic, framleiðandi.
Dómnefnd stuttmynda: Erlendur Sveinsson, kvikmyndagerðarmaður, Vitezlav Chovanec hjá Tékknesku kvikmyndamiðstöðinni og Martina Droandi sölu og dreifiaðili heimmildamynda.
Ungmennadómnefnd: Ísold Ylfa Teitsdóttir, Magnea Sindradóttir og Oliver Sólberg
Stuttmyndadómnefnd unglinga: Artem Gorshenin, Ása Georgía Björnsson Þórðardóttir og Vigdís Birna Arnbjörnsdóttir.