Um KMÍ
Á döfinni

10.10.2017

Undir trénu vann þrjú verðlaun

Undir trénu, nýjasta kvikmynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, vann nýverið til þrennra verðlauna. Fyrst var Hafsteinn Gunnar valinn besti leikstjórinn í gamanmyndaflokki Fantastic Fest í Austin, Texas í Bandaríkjunum, því næst hlaut myndin sérstök dómnefndarverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Zürich og var svo valin besta leikna kvikmyndin á Hamptons kvikmyndahátíðinni í Bandaríkjunum.

Myndin fer því sérlega vel af stað á ferðalagi sínu um kvikmyndahátíðir heimsins. Undir trénu var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum og var stuttu síðar sýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto. Næstu hátíðir sem Undir trénu mun taka þátt á eru meðal annarra alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Chicago og alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Valladolid á Spáni.

Undir trénu var nýverið valin sem framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2018.

Myndin var frumsýnd hérlendis þann 6. september síðastliðinn og hafa rúmlega 33.000 manns séð hana í íslenskum kvikmyndahúsum.

Um myndina

Undir trénu fjallar um Agnesi sem grípur Atla við að horfa á gamalt kynlífsmyndband, hendir honum út og meinar honum að umgangast 4 ára dóttur þeirra. Atli flytur inn á foreldra sína sem eiga í deilu við fólkið í næsta húsi. Stórt og fagurt tré sem stendur í garði foreldranna skyggir á garð nágrannanna, sem eru orðnir langþreyttir á að fá ekki sól á pallinn. Á sama tíma og Atli berst fyrir umgengni við dóttur sína verður deilan um tréð sífellt harðari. Eignaspjöll eru framin og gæludýr hverfa á dularfullan hátt þegar sögusagnir um mann með keðjusög fara á kreik.

Hafsteinn Gunnar Sigurðsson (Á annan vegParís norðursins) leikstýrir Undir trénu og skrifar handritið ásamt Huldari Breiðfjörð. Framleiðendur myndarinnar eru Grímar Jónsson, Sindri Páll Kjartansson og Þórir Snær Sigurjónsson fyrir hönd Netop Films á Íslandi og erlendir meðframleiðendur koma frá Danmörku, Póllandi og Þýskalandi.

Með sölu og dreifingu erlendis fer fyrirtækið New Europe Film Sales (jan@neweuropefilmsales.com)