Um KMÍ
Á döfinni

27.8.2021

Verbúð heimsfrumsýnd á Series Mania

Sjónvarpsþáttaröðin Verbúð tekur þátt í aðalkeppni Series Mania sjónvarpsþáttahátíðarinnar, sem fram fer í Lille í Frakklandi dagana 26. ágúst - 2. september. Þættir 1 og 2 verða heimsfrumsýndir á hátíðinni næstkomandi laugardag, þann 28. ágúst. 

Verbúð fjallar á dramatískan hátt um afleiðingar kvótakerfis fyrir lítið þorp, en Gísli Örn Garðarsson, Björn Hlynur Haraldsson og Mikael Torfason sjá um handritsgerð og leikstjórn er í höndum Gísla Arnar, Björns Hlyns og Maríu Reyndal. Vesturport framleiðir þættina í samstarfi við RÚV, ARTE og Turbine Studios. Þættirnir verða sýndir kringum næstu áramót á RÚV.

Allar nánari upplýsingar um Series Mania má finna hér