Verðlaunahafar á Alþjóðlegri stuttmyndahátíðinni Northern Wave
Alþjóðlega stuttmyndahátíðin NorthernWave var haldin í þrettánda skiptið, síðustu helgi, í Frystiklefanum á Rifi.
Stuttmyndin Selshamurinn eftir Uglu Hauksdóttur hlaut verðlaun fyrir bestu íslensku stuttmyndina en stuttmyndin Krepptur Hnefi eftir Loga Sigursveinsson fékk sérstaka viðurkenningu. Besta alþjóðlega stuttmyndin var íranska myndin Don‘t Tell Anyone eftir Sahar Sotoodeh.
Ljósmynd eftir Rut Sigurðardóttur
Á hátíðinni spiluðu hljómsveitirnar Reykjavíkurdætur og Vök fyrir hátíðargesti. Fyrirtæki á svæðinu styrktu tónleikana og buðu öllum bæjarbúum Snæfellsbæjar og Grundarfjarðar frítt á tónleikana.
Á Northern Wave er mikil áhersla lögð á tónlist þar sem sérstakur keppnisflokkur er helgaður tónlistarmyndböndum. Í ár voru það einmitt Reykjavíkurdætur sem báru sigur úr býtum fyrir besta tónlistarmyndbandið við lagið Thirsty hoes í leikstjórn Þuríðar Blær Jóhannsdóttur sem er ein af Reykjavíkurdætrum.
Ljósmynd eftir Rut Sigurðardóttur
Í dómnefnd voru leikarinn Ólafur Darri Ólafsson sem var jafnframt heiðursgestur hátíðarinnar, handritshöfundurinn Ottó Geir Borg og Nanna Frank Rasmussen gagnrýnandi Politiken.
Ljósmynd eftir Rut Sigurðardóttur
Á hátíðinni var einnig boðið upp á barnadagskrá m.a. með sundbíói í sundlaug Ólafsvíkur, stuttmyndanámskeið fyrir krakka og bíóplakatasmiðju í Frystiklefanum. Auk þess var haldin vinnusmiðja fyrir ungar norrænar kvikmyndagerðarkonur undir yfirskriftinni „Norænar stúlkur skjóta“.