Verðlaunahafar Skjaldborgar 2025
Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda fór fram í átjánda sinn um nýliðna helgi. Venju samkvæmt lauk hátíðinni með verðlaunaafhendingu.
Ný verðlaun voru kynnt í þetta sinn, sem veitt eru til minningar um Ásgeir H Ingólfsson menningarblaðamann, ljóðskáld og fastagest hátíðarinnar. Ásgeir féll frá í byrjun árs 2025. Í tilkynningu hátíðarinnar segir að hans sé minnst af þakklæti og hlýhug. „Hann var einn af okkar mætustu fastagestum. Hann skrifaði fjölda greina um hátíðina og lagði kapp á að mæta á Skjaldborg.“ Verðlaunin eru veitt fyrirmyndaráhorfanda hátíðarinnar og féllu þau í skaut Beate Rosskopf, sem rambaði inn á hátíðina 2022 og hefur verið fastagestur síðan með bros á vör.
Einarinn, áhorfendaverðlaun hátíðarinnar, voru veitt heimildamyndinni Bóndinn og verksmiðjan. Barði Guðmundsson og Hrafnhildur Gunnarsdóttir leikstýrðu og Hrafnhildur Gunnarsdóttir hjá Krumma Films framleiddi myndina. Myndin fjallar um baráttu bónda í Hvalfirði við kerfið eftir að hross taka að veikjast eitt af öðru af völdum meintrar flúormengunar frá álverksmiðju í næsta nágrenni. Bóndinn mætir skilnings- og afskiptaleysi stjórnvalda og er sjálfur sagður bera ábyrgðina. Bóndinn leitar allra leiða til að komast að hinu sanna í málinu en á við ofurefli að etja.
Ljósmynd: Patrik Ontkovic.
Dómnefndarverðlaun hátíðarinnar, Ljóskastarinn, voru veitt Paradís amatörsins. Leikstjóri myndarinnar er Janus Bragi Jakobsson. Framleiðandi er Tinna Ottesen hjá Stefnuljósi. Í myndinni deila íslenskir karlmenn, af fjórum ólíkum kynslóðum, eigin lífi á YouTube – allt frá frá óperusöng í stofunni heima til fjölskyldumyndbanda og einlægra játninga.
Ljósmynd: Patrik Ontkovic.
Umsögn dómnefndar um myndina:
„Kvikmyndin er einlæg, áhugaverð, gamansöm og eftirminnileg saga sem heillaði dómnefndina upp úr skónum. Hún býður upp á listræna sýn höfundar um hvernig það er að vinna með sögur annarra sem áður hafa birst á opinberum vettvangi. Mannlegar sögur og þörf mismunandi kynslóða til að vinna með myndrænar skrásetningar. Persónurnar koma ljóslifandi fram þar sem áhorfandinn nær að kynnast þeim á persónulegum nótum.“
Skjaldan, fyrir heimildastuttmynd ársins, var veitt myndinni Ósigraður eftir Jónu Grétu Hilmarsdóttur. Ósigraður fjallar um Hilmar Pál Jóhannesson, föður leikstjórans, en eftir áralangt mál við Reykjavíkurborg vegna lóðar í Gufunesi finnur hann sig í stöðugri baráttu við borgina og sjálfan sig.
Ljósmynd: Patrik Ontkovic.
Umsögn dómnefndar:
„Kvikmyndin býður upp á skýra rödd höfundar á verki sem hefst á óréttlæti manns sem ætlar sér að sigra báknið. En í raun er sagan um samband sem skilur áhorfandann eftir með ákveðnar spurningar og flóknar tilfinningar. Höfundur vílar sér ekki við að móta söguframvinduna með skemmtilegum og afhjúpandi augnablikum. Eftir stendur áhugaverður kvikmyndalistamaður sem á framtíðina fyrir sér í greininni.“
Dómnefnd Skjaldborgar 2025 var skipuð þeim Ásu Baldursdóttur, dagskrárstjóra Bíó Paradísar, Maks Piłasiewicz, hátíðadagskrárgerðarmanni og framleiðanda, og Sighvati Ómari Kristinssyni, klippara.