Verðlaunahafar Stockfish 2025
Alþjóðlegu kvikmynda- og bransahátíðinni Stockfish lauk um helgina í Bíó Paradís. Þetta var í ellefta sinn sem hátíðin fer fram. Veitt voru verðlaun í fjórum flokkum fyrir íslenskar stuttmyndir en að auki voru veitt tvenn heiðursverðlaun.
Verðlaunahafar hátíðarinnar voru Bókin eftir Flóka Larssen í flokki heimildamynda, Í takt eftir Hönnu Hulda Hafþórsdóttir sem var einnig handhafi Evu Maríu Daníels verðlaunanna sem eru veitt í minningu framleiðandans Evu Maríu Daníelsdóttur. Godspeed eftir Klāvs Liepiņš hlaut verðlaun í flokki tilraunakenndra mynda og tónlistarmyndbandið Myndi Falla með Úlfur Úlfur í leikstjórn Magnúsar Leifssonar hlaut verðlaun í flokki tónlistarmyndbanda. Að auki voru tvær myndir sem hlutu sérstaka viðurkenningu en það voru heimildarmyndir Ég er bara Elma eftir Elmu Dís Davíðsdóttur og leikna myndin MERKI Í leikstjórn Rúnars Inga Einarssonar.
Heiðursverðlaunahafar hátíðarinnar voru kanadíska/ítalska leikstýran Floria Sigismondi og Dóra Einarsdóttir búningahönnuður. Báðar voru heiðraðar fyrir ómetanlegt framlag sitt til kvikmyndagerðar.
Aðsókn á hátíðina var framar björtustu vonum. Frítt var inn á hátíðina og í fyrsta skipti frá upphafi var ákveðið að bjóða bíógestum að greiða eftir getu.
Hátíðin var með ítalskan fókus en á sama tíma var súrrealískur andi yfir henni, þar sem David Lynch var heiðraður með pallborði og styttu sem var til sölu í Bíó Paradís. Boðið var upp á fjölda viðburða og námskeiða á vegum hátíðarinnar, þar með talin málþing um fötlun og inngildingu í bíó, táknmálstúlkaðar og sjónlýstar kvikmyndir, handritasmiðju, meistarspjöll bæði við heiðursgestinn Floriu Sigismondi en líka við Clare Langan sem hefur um áratugabil gert listrænar stuttmyndir á Íslandi. Hátíðin var með viðburði í Hafnar.haus og tónlistarmiðstöð þar sem var fullt hús í pallborði um kvikmyndatónlist og samningagerð.