Um KMÍ
Á döfinni

14.12.2021

Verkefnið Solitude eftir Ninnu Pálmadóttur vinnur til ArteKino verðlaunanna í Les Arcs

Solitude, verkefni í þróun eftir Ninnu Pálmadóttur, vann til ArteKino verðlaunanna fyrir besta verkefnið á Coproduction Village, samframleiðslumarkaði kvikmyndahátíðarinnar í Les Arcs í Frakklandi. Á Coproduction Village voru alls 18 evrópsk verkefni í þróun kynnt framleiðendum, söluaðilum, dreifingaraðilum og öðrum fjármögnunaraðilum.

Í röksemd dómnefndar fyrir valinu segir: 
"The ArteKino International Award‘s choice went to the project of a young director, who has expressed her talent in two sensitive and poetic short films. Her first feature echoes harmoniously with the characters of her shorts and her universe with the one of her scriptwriter, a very talented Icelandic director."

Solitude er framleidd af Pegasus Pictures í samframleiðslu við króatíska framleiðslufyrirtækið MP Film Production. Allar nánari upplýsingar um kvikmyndahátíðina í Les Arcs og Coproduction Village má finna á heimasíðu hátíðarinnar.