Um KMÍ
Á döfinni

11.12.2018

Vetrarbræður vann til verðlauna á Arctic Open

Kvikmyndin Vetrarbræður eftir Hlyn Pálmason vann til verðlauna á Arctic Open kvikmyndahátíðinni sem fór fram dagana 6. – 9. desember í borginni Arkhangelsk í Rússlandi. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin en þrjár kvikmyndir eftir Dag Kára voru einnig sýndar í sérstökum fókus á leikstjórann. Þær myndir sem  urðu fyrir valinu voru; Nói Albinói, Fúsi og The Good Heart eftir Dag Kára. 

 Vetrarbræður hlaut verðlaun fyrir bestu kvikmyndatökuna í flokknum „The Arctic As It Is“ en hún var í höndum Maria von Hausswolff kvikmyndatökukonu. Maria hefur áður unnið með Hlyni en hún tók upp stuttmyndirnar hans; Seven boats sem kom út árið 2014 og En maler sem kom út árið 2014 og hefur hlotið mörg alþjóðleg verðlaun og þar á meðal verðlaun fyrir bestu stuttmyndina á RIFF, Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík.

Frekari upplýsingar um hátíðina Arctic Open, fókusa og verðlaun má finna hér