Um KMÍ
Á döfinni

12.9.2023

Volaða land framlag Íslands til Óskarsverðlauna

Kvikmyndin Volaða Land verður framlag Íslands til Óskarsverðlauna 2024. Myndin var valin af dómnefnd Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, en í henni í sátu fulltrúar helstu fagfélaga íslenska kvikmyndaiðnaðarins, auk fulltrúa kvikmyndahúsa, gagnrýnenda og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.

Umsögn dómnefndar er svohljóðandi:

Volaða Land er margslungið heilsteypt kvikmyndaverk sem ögrar áhorfandanum með því að spyrja sammannlegra spurninga um tilvist og tilgang mannsins á hugrakkan og áleitin hátt.

Myndin segir frá ungum dönskum presti, Lucas, sem heldur til Íslands undir lok 19. aldar í þeim tilgangi að reisa kirkju og ljósmynda íbúa eyjunnar.

Óvægin náttúruöflin hafa snemma áhrif á ferðalagið og samskipti „nýlenduherrans“ við íslenska sveitamanninn Ragnar ganga ekki sem skyldi vegna tungumálaerfiðleika og menningarmuns. Á ferðalaginu og í leit sinni að æðri mætti þarf presturinn að kljást við sjálfan sig andspænis náttúrunni. Löngun hans til yfirráða gagnvart henni verður honum að falli.

Kvikmyndataka Mariu Von Hausswolff er stórbrotin og er hver rammi eins og listaverk. Náttúra Íslands í gegnum linsu hennar er í senn óvægin, framandi, ógnvekjandi, fráhrindandi og blaut en líka ægifögur og heillandi án þess að verða nokkurntímann væmin eða yfirdrifin.

Þrátt fyrir að viðfangsefni myndarinnar og efnistök séu alvarleg og drungaleg er myndin oft á tíðum mjög fyndin og sett fram af einstakri næmni og dýpt.

Tilnefningar til Óskarsverðlaunanna verða kynntar þriðjudaginn 23. janúar 2024. Verðlaunahátíðin fer svo fram á sunnudegi 10. mars 2024.

Volaða Land er skrifuð og leikstýrð af Hlyni Pálmasyni (Hvítur, Hvítur Dagur, Vetrarbræður), og með aðalhlutverk fara Elliott Crosset Hove, Ingvar Sigurðsson, Vic Carmen Sonne, Ída Mekkín Hlynsdóttir, Jacob Hauberg Lohmann, og Hilmar Guðjónsson.

Myndin er framleidd af Antoni Mána Svanssyni fyrir Join Motion Pictures og Katrin Pors, Eva Jakobsen og Mikkel Jersin fyrir Snowglobe í Danmörku. Dreifingaraðili myndarinnar í Bandaríkjunum er Janus Films.

Frá frumsýningu myndarinnar á Cannes kvikmyndahátíðinni 2022 hefur hún safnað fjölda verðlauna og tilnefninga á mörgum virtustu alþjóðlegu kvikmyndahátíðunum heims, auk þess sem hún hefur verið tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs og hinna mikilsvirtu Evrópsku Kvikmyndaverðlauna.

Myndin var frumsýnd á Íslandi 10. mars 2023 og hlaut hún tvenn verðlaun á Edduverðlaunahátíðinni í sama mánuði. Hlynur hlaut Edduverðlaun fyrir leikstjórn ársins og Maria von Hausswolff fyrir kvikmyndatöku.

Volaða Land er stórbrotin saga af baráttu manns við náttúruna, trúna og sitt dýrslega eðli. Undir lok 19. aldar ferðast ungur danskur prestur til Íslands í þeim tilgangi að reisa kirkju og ljósmynda íbúa eyjunnar. Sérvitur leiðsögumaður leiðir prestinn í gegnum harðneskjulegt landið á hestbaki ásamt hópi heimamanna. Eftir því sem líður á ferðalagið missir presturinn tökin á veruleikanum, ætlunarverkinu og eigin siðgæði.