Um KMÍ
Á döfinni

25.5.2022

Volaða land heimsfrumsýnd við standandi lófaklapp í Cannes

Kvikmynd Hlyns Pálmasonar, Volaða land, var heimsfrumsýnd við mikinn fögnuð á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Cannes 24. maí. Myndin er sýnd í aðaldagskrá hátíðarinnar, í flokki Un Certain Regard, og fengu aðstandendur hennar standandi lófaklapp að lokinni frumsýningunni.

24_05CANNES_LVU_00194

Volaða land hefur fengið afar jákvæð viðbrögð og dómar um myndina til að mynda birst á vef Cineuropa , Variety og International Cinephile Society . Gagnrýnandi Cineuropa segir meðal annars að ekki sé langt undan að Hlynur keppi um aðalverðlaun hátíðarinnar, gullpálmann sjálfan. Gagnrýnandi Variety segir að Hlynur sé einstakur kvikmyndagerðarmaður sem styrkist með hverri mynd. Í dómi ICS segir að Volaða land sé epískt ferðalag sem veki hugrennitengsl við bestu kvikmyndagerðarmenn sögunnar.

Volaða land fjallar um ungan danskan prest sem ferðast til Íslands undir lok 19. aldar með það að markmiði að reisa kirkju og ljósmynda íbúa eyjunnar á för sinni. Elliott Crosset Hove fer með aðalhlutverkið og Ingvar Sigurðsson fer með hlutverk sérviturs leiðsögumanns, sem leiðir prestinn í gegnum harðneskjulegt landið á hestbaki ásamt hópi heimanna. Með önnur hlutverk fara Vic Carmen Sonne, Hilmar Guðjónsson og Ída Mekkín Hlynsdóttir.

Fyrri verk Hlyns hafa verið heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðunum í Berlín, Cannes, Locarno og Toronto, og unnið til fjölda verðlauna víðs vegar um heiminn. Stuttmyndin Sjö bátar hóf ferðalag sitt í Toronto árið 2014, kvikmyndin Vetrarbræður tók þátt í aðalkeppni Locarno árið 2017, og kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur keppti í Critics' Week á Cannes árið 2019. Þá var stuttmyndin Hreiður valin til þátttöku á þessu ári í Berlinale Special hluta Berlínarhátíðarinnar.

Volaða Land er framleidd af íslenska framleiðslufyrirtækinu Join Motion Pictures og hinu danska Snowglobe. Framleiðendur eru Anton Máni Svansson, Katrin Pors, Eva Jakobsen, og Mikkel Jersin. Meðframleiðendur eru Didar Domehri frá Maneki Films í Frakklandi, Anthony Muir og Peter Possne frá Film I Väst í Svíþjóð, Mimmi Spång frá Garagefilm í Svíþjóð, og Guðmundur Arnar Guðmundsson frá Join Motion Pictures, Íslandi.

Sölufyrirtæki myndarinnar á alþjóðavísu er New Europe Film Sales.