Um KMÍ
Á döfinni

11.3.2019

XY valin sigurvegari Sprettfisksins á Stockfish kvikmyndahátíðinni

Sigurvegari Sprettfisksins var tilkynntur á lokaathöfn Stockfish í gærkvöldi

Stuttmyndin XY eftir Önnu Karín Lárusdóttur bar sigur úr býtum og hlaut í verðlaun 1 milljón kr. tækjaúttekt hjá Kukl.

Í dómnefnd sátu: Alissa Simon dagskrárstjóri Palm Springs IFF, Steve Gravestock dagskrárstjóri á Toronto IFF og Wendy Mitchell, norrænn fréttaritari hjá Screen International og norrænn tengiliður San Sebastian kvikmyndahátíðarinnar.

Umsögn dómnefndar um verðlaunamyndina er eftirfarandi:
“First, we would like to thank the Stockfish Film Festival for asking us to be on the jury and for so graciously hosting us in one of the world's most vibrant cities. It was an honour to serve on the Shortfish jury and see the work of a new generation of Icelandic filmmakers. For its assured direction, nuanced and touching performances (especially from its talented young cast), and sensitive engagement with timely and complicated issues, the jury awards the prize to XL by Anna Karin Larusdottir”

Sprettfiskur er stuttmyndakeppni Stockfish hátíðarinnar. Markmið keppninnar er að vekja athygli á ungu og upprennandi kvikmyndagerðarfólki og hvetja til frekari dáða með verðlaunum sem leggja grunninn að næsta verkefni.

Nánari upplýsingar um Stockfish kvikmyndahátíðina má lesa hér.