Áhorf á íslenskt efni í sjónvarpi 2014

Birtist upphaflega á Klapptré þann 21. janúar 2015 og er birt hér með góðfúslegu leyfi ritstjóra.

Hér er að finna tæmandi lista yfir áhorf á íslenskar leiknar kvikmyndir í fullri lengd, heimildamyndir, leikið sjónvarpsefni og stuttmyndir í sjónvarpi. Listinn nær yfir allt þetta efni sem birtist á íslensku sjónvarpsstöðvunum 2014.

Tölurnar eru byggðar á áhorfsmælingum Capacent sem framkvæmdar eru daglega árið um kring. Birtar eru áhorfstölur í prósentum og fjölda áhorfenda. Á bakvið hvert prósent eru 2.420 manns á aldrinum 12-80 ára.

Hafa ber í huga að mælingar eru mismunandi eftir eðli verka. Leiknar kvikmyndir í fullri lengd eru t.d. (oftast) sýndar í heilu lagi og því er um heildaráhorf að ræða. Þó eru þær í sumum tilfellum sýndar oftar en einu sinni á árinu og þar er því áhorf á báða sýningartíma lagt saman. Heimildamyndir eru stundum stakar en stundum í þáttaröðum. Gerð er grein fyrir þessu með hvert verk og því ýmist um heildaráhorf eða meðaltalsáhorf á þátt að ræða eftir atvikum. Leikið sjónvarpsefni er yfirleitt sýnt í nokkrum þáttum og að auki gjarnan endursýnt síðar í sömu viku og því er þar sagt frá meðaláhorfi á þátt.

Einnig skal bent á að í mörgum tilfellum er um endursýningar á verkum að ræða og á það sérstaklega við um eldri verk. Ekki er ljóst af þeim gögnum sem Klapptré hafði undir höndum hvaða verk var verið að endursýna árið 2014.


Áhorf á leikið íslenskt sjónvarpsefni 2014

Heiti Stöð Fjöldi þátta Fjöldi sýninga Áhorf% Áhorfendur
Hraunið RÚV 4 2 52,6*** 127.292
Ó blessuð vertu sumarsól RÚV 2 1 29,4*** 71.148
Stelpurnar Stöð 2 12 2 11,3*** 27.346
Hreinn Skjöldur Stöð 2 4 2 11,1*** 26.862

***Meðaláhorf á þátt.

 

Áhorf á íslenskar bíómyndir 2014

Heiti Stöð Fjöldi sýninga Áhorf% Áhorfendur
Borgríki RÚV 2 35,9** 86.878
Harry og Heimir RÚV 1 26 62.920
Kurteist fólk RÚV 1 20,9 50.578
Málmhaus RÚV 1 18,5 44.770
Mamma Gógó RÚV 1 16,9 40.898
Djúpið Stöð 2 2 14,3** 34.606
Land og synir RÚV 1 13 31.460
Börn náttúrunnar RÚV 1 10,7 25.894
Hvítir mávar RÚV 1 9,2 22.264
Reykjavik Whale Watching Massacre RÚV 1 8,9 21.538
Hafið Stöð 2 1 8,1 19.602
101 Reykjavík Stöð 2 1 6,7 16.214
Stikkfrí RÚV 1 4,7 11.374

**Tvær sýningar á árinu, samanlagt áhorf.

 

Áhorf á íslenskar heimildamyndir 2014

Heiti Stöð Fjöldi þátta Fjöldi sýninga Áhorf% Áhorfendur
Yrsa Sigurðardóttir - Meistari óhugnaðarins RÚV 1 1 24 58.080
Saga Eimskipafélags Íslands RÚV 2 1 22* 53.240
Kristín Gunnlaugsdóttir RÚV 1 1 18,3 44.286
Strigi og flauel RÚV 1 1 18 43.560
Lýðveldisbörnin RÚV 1 1 16,7 40.414
Hallfríður Ólafsdóttir - Flautuleikari músarinnar RÚV 1 1 14,4 34.848
Höggið Stöð 2 1 2 14,4** 34.848
Hreint hjarta RÚV 1 1 12,4 30.008
Liljur vallarins RÚV 1 2 12,4** 30.008
Act Normal (Vertu eðlilegur) RÚV 1 1 10 24.200
Baráttan um landið RÚV 1 1 7,5 18.150
Með hangandi hendi RÚV 1 1 3,4 8.228
Laxness og svarti listinn RÚV 1 1 3,1 7.502
Blikkið RÚV 1 1 2,8 6.776
Draumalandið RÚV 1 1 2,8 6.776
Draumurinn um veginn RÚV 5 1 2,4* 5.808
Hrafnhildur RÚV 1 1 2,4 5.808
Roðlaust og beinlaust RÚV 1 1 1,4 3.388
Fjallkonan RÚV 1 2 1,3** 3.146
Gnarr Stöð 2 1 1 1,3 3.146
Dieter Roth (Dieter Roth Puzzle) RÚV 1 1 1,2 2.904
Veturhús Stöð 2 1 1 0,7 1.694
Pönk í Reykjavík Stöð 2 4 1 0,5* 1.210

*Meðaláhorf á þátt. | **Tvær sýningar á árinu, samanlagt áhorf.

 

Áhorf á íslenskar stuttmyndir 2014

Heiti Stöð Fjöldi þátta Fjöldi sýninga Áhorf% Áhorfendur
Hvalfjörður RÚV 1 1 22 53.240
Takk fyrir hjálpið RÚV 1 1 16,9 40.898
Hrein (Clean) RÚV 1 1 4,5 10.890
Karamellumyndin RÚV 1 1 3,1 7.502

 


Um KMÍ