Áhorf á íslenskt efni í sjónvarpi 2015

Birtist upphaflega á Klapptré þann 5. apríl 2016 og er birt hér með góðfúslegu leyfi ritstjóra.

Hér að neðan er að finna lista yfir áhorf á íslenskar leiknar kvikmyndir í fullri lengd, heimildamyndir, leikið sjónvarpsefni og stuttmyndir í sjónvarpi árið 2015.

Um aðferðafræðina

Tölurnar eru byggðar á áhorfsmælingum Gallup sem framkvæmdar eru daglega árið um kring. Birtar eru áhorfstölur í prósentum og fjölda áhorfenda. Á bakvið hvert prósent eru 2.420 manns á aldrinum 12-80 ára. Tölurnar innihalda allt áhorf, þar með talið svokallað hliðrað áhorf (Sarpur, tímaflakk, VOD o.fl.)

Um öll verk gildir að ef verk er endursýnt á árinu er áhorf á fyrstu og aðra sýningu (og fleiri eftir atvikum) lagt saman.

Þegar verk birtist í tveimur þáttum eða fleiri er birt meðaláhorf. Það er reiknað þannig að áhorfstölur hvers þáttar fyrir sig eru lagðar saman og deilt í með fjölda þátta.

Hafa ber í huga að útleggingar mælinga eru mismunandi eftir eðli verka.

Leiknar kvikmyndir í fullri lengd eru (oftast) sýndar í heilu lagi og því er um heildaráhorf að ræða. Þó eru þær í sumum tilfellum sýndar oftar en einu sinni á árinu og þar er því áhorf á báða sýningartíma lagt saman.

Heimildamyndir eru stundum stakar en stundum í þáttaröðum. Gerð er grein fyrir þessu með hvert verk og því ýmist um heildaráhorf eða meðaláhorf á þátt að ræða eftir atvikum.

Leikið sjónvarpsefni er yfirleitt sýnt í nokkrum þáttum og að auki gjarnan endursýnt og því er þar sagt frá meðaláhorfi á þátt.

Í mörgum tilfellum er um endursýningar á verkum að ræða og á það sérstaklega við um eldri verk. Þau eru merkt sérstaklega með (e).

Einnig er rétt að benda á að sumar tölur eru námundaðar, á það sérstaklega við um verk sem sýnd eru í bútum (með auglýsingahléum) en nokkuð flókið er að finna út hárnákvæmt áhorf á slíkar sýningar. Tölurnar eru þó nærri lagi.

 

Áhorf á leikið sjónvarpsefni 2015

Heiti Stöð Fjöldi þátta Fjöldi sýninga Áhorf% Áhorfendur
Ófærð RÚV 1 2 65,3*** 158.026
Drekasvæðið RÚV 6 2 35*** 84.700
Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum RÚV 3 3 32,5*** 78.650
Klukkur um jól RÚV 3 3 15,8*** 38.236
Réttur III Stöð 2 9 2 15,6*** 37.752
Blóðberg Stöð 2 1 1 14,6 35.332
Hreinn Skjöldur (e) Stöð 2 7 2 12,9*** 31.218
Brekkukotsannáll (e) RÚV 2 2 11,3*** 27.346
Þær tvær Stöð 2 6 1 9,3*** 22.506
Ástríður II (e) Stöð 2 6 1 6,8*** 16.660
Paradísarheimt (e) RÚV 3 2 6,4*** 15.488
Stelpurnar (e) Stöð 2 11 1 4,9*** 11.858

***Meðaláhorf á þátt.| (e) Endursýning. | Athugið að í tilfelli Ófærðar er aðeins um fyrsta þátt að ræða.

 

Áhorf á leiknar kvikmyndir í fullri lengd 2015

Heiti Stöð Fjöldi sýninga Áhorf% Áhorfendur
Vonarstræti RÚV 2 29,6** 71.632
Stella í orlofi (e) RÚV 1 29,2 70.664
Hross í oss RÚV 1 23,9 57.838
Jóhannes (e) RÚV 1 18,1 43.802
Veggfóður (e) RÚV 1 17,8 43.076
Okkar eigin Osló (e) RÚV 1 15,6 37.752
Falskur fugl RÚV 1 15 36.300
Perlur og svín (e) RÚV 1 14,3 34.606
Órói (e) RÚV 1 13,1 31.702
Skrapp út (e) RÚV 1 13 31.460
Reykjavík-Rotterdam (e) RÚV 1 12,9 31.218
Ungfrúin góða og húsið (e) RÚV 1 12,9 31.218
Gauragangur (e) RÚV 1 12 29.040
Benjamín dúfa (e) RÚV 1 11,9 28.798
Á annan veg (e) RÚV 1 11,5 27.830
79 af stöðinni (e) RÚV 1 10,9 26.378
Hrafninn flýgur (e) RÚV 1 10,7 25.894
Karlakórinn Hekla (e) RÚV 1 10,4 25.168
Skilaboð til Söndru (e) RÚV 1 10,1 24.442
Rokland (e) RÚV 1 9,2 22.264
Kristnihald undir jökli (e) RÚV 2 8,8** 21.296
Atómstöðin (e) RÚV 1 8,5 20.570
Salka Valka (e) RÚV 1 8 19.360
Kaldaljós (e) RÚV 1 7,8 18.876
Tár úr steini (e) RÚV 1 7,3 17.666
Raquela drottning (The Amazing Truth About Queen Raquela) (e) RÚV 1 5,5 13.310
Nói albínói (e) RÚV 1 5,3 12.826
Ikingut (e) RÚV 1 3,2 7.744
Africa United (e) Stöð 2 1 1,6 3.872
Svartur á leik (e) Stöð 2 1 1,1 2.662
Djúpið (e) Stöð 2 1 0,75 1.815
Bjarnfreðarson (e) Stöð 2 1 0,75 1.815

**Tvær sýningar á árinu, samanlagt áhorf.

 

Áhorf á heimildamyndir 2015

Heiti Stöð Fjöldi þátta Fjöldi sýninga Áhorf% Áhorfendur
Popp- og rokksaga Íslands RÚV 5 3 29,3*** 70.906
Sægreifinn RÚV 1 3 27,5** 66.550
Ferðin heim RÚV 1 1 25,2 60.984
Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum RÚV 1 1 21,9 52.998
Búðin RÚV 1 2 21,2** 51.304
Fyrirheitna landið? RÚV 1 1 20,8 50.336
Álafoss - Ull og ævintýri RÚV 1 2 19,4** 46.948
Búrfell RÚV 1 1 19,4 46.948
Konur rokka RÚV 1 2 18,4** 44.528
Öldin hennar RÚV 52 2 18*** 43.560
Höggið (e) Stöð 2 1 4 17,5** 42.350
Jöklarinn RÚV 1 2 16,7** 40.414
Kvikur sjór RÚV 1 1 15,2 36.784
Saga Stuðmanna Stöð 2 1 3 13,9** 33.638
Salóme RÚV 1 1 13,5 32.670
Brynhildur Þorgeirsdóttir RÚV 1 2 13,2** 31.944
Finnbogi Pétursson RÚV 1 1 10,9 26.378
Fiðruð fíkn (Feathered Cocaine) (e) RÚV 1 1 6,2 15.004
Amma (e) RÚV 1 1 3,2 7.744
Konsúll Thomsen keypti bíl (e) RÚV 3 1 2,8* 6.776
Hrafnhildur (e) RÚV 1 1 2,3 5.566
Súðbyrðingur - saga báts (e) RÚV 1 1 2,3 5.566
Hreint hjarta (e) RÚV 1 1 1,8 4.356
Veturhús (e) Stöð 2 1 1 1,6 3.872
Hvellur (e) RÚV 1 1 0,9 2.178
Íslensk alþýða (e) RÚV 1 1 0,6 1.452

*Meðaláhorf á þátt. | **Samanlagt áhorf. | *** Meðaláhorf á þátt, samanlagt áhorf (með endursýningum)

 

Áhorf á stuttmyndir 2015

Heiti Stöð Fjöldi sýninga Áhorf% Áhorfendur
Skaði RÚV 1 15,6 37.752
Þröstur RÚV 1 11,2 27.104
Heilabrotinn (e) RÚV 1 8,9 21.538
Naglinn (e) RÚV 1 8,1 19.602
Sailcloth (e) Stöð 2 1 3,6 8.712

Um KMÍ