
ACE Producers: Series Special
Umsóknarfrestur: 6. júní
ACE Series Special er vinnustofa fyrir reynda framleiðendur sem vilja samþætta deildir fyrir sjónvarpsefni við fyrirtækin sín eða auka eigin þekkingu á þróun og framleiðslu leikins sjónvarpsefnis fyrir alþjóðlegan markað.
16-18 framleiðendur eru valdir til þátttöku á vinnustofunni, sem eru með leikna þáttaröð á þróunarstigi. Lögð er áhersla á þá þætti framleiðslunnar sem snúa að sköpun og fjármögnun, en auk þess verður boðið upp á málstofur sem snúa að samstarfi við sjónvarpsstöðvar og streymisveitur, markaðssetningu, áhorfendagreiningu og gerð viðskiptaáætlana.
Umsóknarfrestur er til 6. júní 2023.
Vinnustofan fer fram 30. október - 4. nóvember 2023 í Riga í Lettlandi.