Um KMÍ
  • 14. desember - 26. janúar

dok.incubator óskar eftir umsóknum

26. janúar

dok. incubator er 8 mánaða löng vinnusmiðju fyrir klippara, leikstjóra og framleiðendur með heimildamynd sem er á „rough-cut“ stigi.

Vinnusmiðjan leggur sérstaka áherslu á að aðstoða kvikmyndagerðarmenn við að klára heimildamynd, markaðssetja og dreifa.

Í kringum 25 alþjóðlegir leiðbeinendur aðstoða kvikmyndagerðarmenn á námskeiðinu við að klára myndina, koma henni út og útbúa kynningaráætlun.

  • Fyrsti hluti fer fram í lok apríl í Slóvakíu þar sem heimildamyndin og klippið er skoðað.
  • Annar hluti fer fram 24. – 30. júní í Ungverjalandi þar sem lokahönd er sett á klippið og möguleikar á dreifingu myndarinnar kannaðir.
  • Þriðji og síðasti hlutinn fer fram dagana 1. – 7. október í Tékklandi, þar sem áhersla er lögð á að læsa klippi og hugað að markaðssetningu myndarinnar.

Frekari upplýsingar um dok.incubator vinnusmiðjuna má finna hér .