Um KMÍ
  • 4. mars - 16. mars

Handritasmiðja Stockfish

Umsóknarfrestur: 15. mars

Viðburður þar sem handritshöfundar geta skerpt á þekkingu sinni og tengst samfélagi sem deilir ástríðu þeirra fyrir skrifum. 

Handritasmiðjunni er ætlað að efla og þroska íslenska handritshöfunda og skapa umhverfi til samstarfs og tengslamynda. Hún er sniðin að þörfum höfunda með reynslu, sem þurfa jafnframt leiðsögn til að fínpússa handrit sín og koma þeim í framleiðslu.

Handritshöfundurinn og leikstjórinn Tina Gharavi leiðir smiðjuna, en hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín, og hefur meðal annars verið tilnefnd til BAFTA-verðlauna fyrir fyrstu kvikmynd sína, I am Nasrine.



Smiðjan er eingöngu ætluð handritshöfundum með reynslu, og þurfa þátttakendur að hafa skrifað að minnsta kosti eitt kvikmyndahandrit eða sjónvarpsþátt til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til 15. mars 2024.

Verð: kr. 40.000 

Kennslan fer fram á ensku. Nánari upplýsingar er að finna á vef Stockfish.