Les Arcs: verk í vinnslu
Umsóknarfrestur: 18. október
Les Arcs-kvikmyndahátíðin fer fram á skíðastaðnum Bour-Saint Maurice í Frakklandi frá 16. – 23. desember.
Meðfram hátíðinni fara fram sýningar á verkum í vinnslu þar sem 12-14 evrópskar kvikmyndir í eftirvinnslu eru kynntar framleiðendum, söluaðilum, dreifingaraðilum og öðrum fjármögnunaraðilum.
Umsóknarfrestur rennur út 18. október.
Nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðublöðum má nálgast á vef Les Arcs.