Um KMÍ
  • 13. september - 16. október

Opið fyrir skráningar í stuttmyndakeppni Sólveigar Anspach 2023

13. september - 16. október

Opnað hefur verið fyrir skráningar í stuttmyndakeppni Sólveigar Anspach, sem fer fram sem hluti af RVK Feminist Film Festival. Dómnefnd velur stuttmyndir sem keppa um tvenn verðlaun, fyrir bestu stuttmyndina á frönsku og fyrir bestu stuttmyndina á íslensku.

Stuttmyndirnar verða sýndar á sérstakri kvöldvöku í Reykjavík sem hluti af RVK Feminist Film Festival í janúar 2023 og í Pantin í Frakklandi júní 2023, sem hluti af stuttmyndahátíðinni Côté Court.

Skilyrði fyrir þátttöku:

  • Að leikstjóri stuttmyndarinnar sé kona, með ríkisfang eða búsetu í frönskumælandi landi, eða sé íslensk eða búsett á Íslandi og hún hafi ekki haft framleiðslufyrirtæki á bak við sig í fleiri en þremur myndum.
  • Að myndin sé að hámarki 20 mínútna löng, að meðtöldum kreditlistum. Öllum myndum, sem fara fram yfir þessi mörk, verður umyrðalaust hafnað.
  • Að lokið hafi verið við myndina eftir 1. janúar 2020.
  • Að myndin sé á frönsku eða íslensku.
  • Að myndin sé með enskum texta.
  • Að myndin hafi verið skráð til keppni fyrir 16. október 2022 kl. 23:00 UTC samkvæmt skilyrðum sem tilgreind eru í 3. lið.
  • Að myndin sé á VIMEO formi eingöngu.

Verðlaun Sólveigar Anspach eru veitt með það fyrir augum að hvetja kvenmenn til að leikstýra kvikmyndum í auknum mæli. Aðstandendur Frönsku kvikmyndahátíðarinnar ákváðu að heiðra minningu Sólveigar, sem lést aðeins 54 ára að aldri árið 2015, með því að nefna þessi verðlaun í höfuðið á henni.

Sendiráð Íslands í París býður íslenska leikstjóranum, sem hlýtur verðlaunin, til Frakklands til þess að kynna mynd sína á stuttmyndahátíðinni Côté Court í Pantin.

Netfang: sashortfilms@af.is

Allar nánari upplýsingar um stuttmyndakeppnina og hvernig skuli sækja um er að finna á vef Alliance Française Reykjavík.