Óskað er eftir umsóknum stuttmyndaverkefna á Euro Connection 2025
Umsóknarfrestur: 20. október 2024
Euro Connection fer fram dagana 4. og 5. febrúar árið 2025. Euro Connection er viðburður sem haldinn er árlega samhliða Clermont-Ferrand stuttmyndahátíðinni í Frakklandi, en um er að ræða samframleiðsluvettvang sem gefur þátttakendum tækifæri til að kynna verkefni sín og mynda tengsl við aðra framleiðendur og fagaðila í Evrópu.
Auglýst er eftir stuttmyndaverkefnum í leit að alþjóðlegu samstarfi. Kröfur eru gerðar um að stuttmyndin sé ekki lengri en 30 mínútur, umsækjandi verður að hafa hlotið styrk fyrir verkefninu að hluta til og tökur eða framleiðsla má ekki hefjast fyrir júní 2025.
Umsóknarfrestur er til 20. október.
Umsóknir skulu vera á ensku og skal skilað til fulltrúa Clermont Ferrand-hátíðarinnar á netfangið l.crouzeix@clermont-filmfest.org. Forsvarsmenn Euro Connection taka lokaákvörðun um þau verkefni sem verða valin inn.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um má finna á vef hátíðarinnar.