Um KMÍ
  • 18. mars - 19. apríl

Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda óskar eftir umsóknum

18. mars / 19. apríl

Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda snýr aftur heim á Patreksfjörð og verður haldin í fimmtánda sinn um hvítasunnuhelgina 3.-6. júní. Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir verk til frumsýningar og verk í vinnslu til kynningar á hátíðinni. Fyrri umsóknarfrestur er 18. mars 2022 og seinni þann 19. apríl 2022. Umsóknarform er aðgengilegt í gegnum vef Skjaldborgar.

Skjaldborg frumsýnir íslenskar heimildamyndir og hefur það að markmiði að styðja við íslenska heimildamyndagerð. Hægt er að sækja um í tveimur flokkum, frumsýning á heimildamynd eða verk í vinnslu.

Þær íslensku heimildamyndir sem frumsýndar eru á hátíðinni keppa um tvenn verðlaun; áhorfendaverðlaunin Einarinn, sem hafa verið veitt frá upphafi, og dómnefndarverðlaunin Ljóskastarann.

Gjaldgeng til frumsýninga 2022 eru verk sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:

- Heimildamyndir sem ekki hafa verið sýndar opinberlega á Íslandi og munu ekki verða sýndar á Íslandi áður en Skjaldborg 2022 er lokið

- Heimildamyndir sem teljast íslensk framleiðsla, eru eftir íslenska heimildamyndahöfunda og/eða fjalla um íslensk viðfangsefni

Nánari upplýsingar má finna á www.filmfreeway.com/Skjaldborg