Um KMÍ
  • 6. mars - 15. mars

Stockfish: Verk í vinnslu og handritasmiðja

Umsóknarfrestur: 15. mars

Kvikmyndahátíðin Stockfish hefur opnað fyrir innsendingar í verk í vinnslu og handritasmiðju. Enn er opið fyrir umsóknir í Sprettfisk, stuttmyndakeppni hátíðarinnar.

Með þátttöku í verkum í vinnslu gefst aðstandendum kvikmyndaverka einstakt tækifæri til að kynna verkefnin sín fyrir innlendum og erlendum fjölmiðlum, framleiðendum og öðrum áhugasömum.

Verkefnin sem verða fyrir valinu eiga þess kost að auka dreifingar- og kynningarmöguleika bæði hér á Íslandi og erlendis.

Þátttakendur sýna 3-7 mínútna myndbrot úr verkum sínum og að því loknu taka aðstandendur myndarinnar við spurningum úr sal.

Undanfarin ár hefur þessi viðburður vakið mikinn áhuga erlendra blaðamanna og er þetta kjörinn vettvangur fyrir kvikmyndagerðafólk alls staðar að til að hittast og mynda tengsl.

Skráningarfrestur er til 15. mars.

Í handritasmiðju Stockfish býðst handritshöfundum að skerpa á þekkingu sinni, fá gagnrýni á verk sín og tengjast samfélagi handritshöfunda. Handritasmiðjunni er ætlað að efla og þroska íslenska handritsgerð og skapa umhverfi til samstarfs og tengslamyndunar.

Handritasmiðjan er sniðin að þörfum höfunda með reynslu sem þurfa leiðsögn til að fínpússa handrit sín og koma þeim í framleiðslu. Tina Gharavi, handritshöfundur og leikstjóri, leiðir smiðjuna. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín og var meðal annars tilnefnd til BAFTA verðlauna fyrir fyrstu kvikmynd sína, I am Nasrine. Smiðjan er eingöngu ætluð handritshöfundum með reynslu og þurfa þátttakendur að hafa skrifað að minnsta kosti eitt handrit að kvikmynd eða sjónvarpsþætti til að sækja um. Kennslan fer fram á ensku.

Skráningarfrestur er til 15. mars.