Um KMÍ
  • 24. apríl - 2. júní

Vinnusmiðja fyrir heimildamyndir í vinnslu

Umsóknarfrestur: 2. júní 2023

Samtök kvikmyndaleikstjóra standa fyrir vinnusmiðju fyrir heimildamyndir í vinnslu með hinum reynslumikla ráðgjafa Mörtu Andreu. Vinnusmiðjan fer fram með stuðningi frá Kvikmyndamiðstöð Íslands.


Verkefnastjóri er Yrsa Roca Fannberg og berast allar fyrirspurnir og umsóknir á netfangið yrsarocafannberg@gmail.com. Umsóknarfrestur er til 2. júní 2023. 

Vinnusmiðjan fer fram í tveimur hlutum. Sá fyrri fer fram 20.-23. júlí, í samvinnu við alþjóðlegu heimildahátíðina IceDocs á Akranesi, og annar hluti fer fram á höfuðborgarsvæðinu í haust. Nánari dagsetning verður staðfest þegar nær dregur.

Smiðjan er fyrir heimildamyndir í vinnslu, hvort sem þær eru á handritsstigi, í tökum eða klippingu. Í smiðjunni verður lögð áhersla á hið skapandi ferli í kvikmyndagerðinni, frekar en fyrirfram mótaðar hugmyndir og skilgreiningar á heimildamyndum. Eftir sem áður eiga verk sem falla að slíkum skilgreiningum greiðari leið í smiðjuna, en tilraunakenndari verk og skálduð verk sem vísa í formið eru einnig velkomin. Sjónræn miðlun heimildaefnis er skapandi ferli og blöndun milli miðla hefur rutt sér rúms á undanförnum árum. Þær myndir sem hlotið hafa athygli á kvikmyndahátíðum vinna með mörkin milli miðla. Það sem verður metið við val á verkefnum eru gæði umsóknarinnar, skýr listræn sýn með áherslur á raunveruleikann og kvikmyndamiðilinn sem og áhersla á að fjalla um samtímann á sem áhrifamestan og skapandi hátt og hægt er. Verkefni sem hafa áður tekið þátt í heimildasmiðjunni þar sem Marta Andreu var ráðgjafi, árin 2021 og 2022, eru velkomin að sækja um en verkefni þurfa að hafa verið þróuð síðan þau fengu ráðgjöf síðast. Gert er ráð fyrir að 5-6 verkefni taki þátt.

Ráðgjafi er Marta Andreu, sem hefur mikla reynslu sem leiðbeinandi. Hún hefur meðal annars verið einn af leiðbeinendum í Torino Film Lab, Eurodoc og Open Doors of Locarno Film Festival og fjölda annara vinnusmiðja. Marta hefur verið hluti af World Cinema Fund Program hjá Berlinale síðan 2011, þar velur hún verkefni á ýmsum framleiðslustigum sem hljóta styrki úr sjóðnum.

Þátttökugjald er 20.000 ISK þar sem innifalið er gisting, morgun- og hádegismatur á IceDocs, þátttakendur þurfa að greiða fyrir kvöldverð og ferðakostnað. Í Reykjavík þurfa þátttakendur að greiða fyrir fæði, gistingu og ferðakostnað. Ætlast er til að allir þátttakendur taki fullan þátt í báðum smiðjum og taki sér tíma til að vinna að myndinni sinni á milli þeirra.

Smiðjan fer fram á ensku og eiga umsóknir að vera á ensku og berast sem eitt pdf skjal, sem inniheldur synopsis (max 1 bls), greinagerð leikstjóra (e. Letter of intent) (max 1 bls), treatment sem inniheldur (mögulegar persónur, mögulegar senur/sequences, sjónræna sýn myndarinnar: mynd og hljóð).

Nefnd velur 10 verkefni og áframsendir til Mörtu Andreu sem sér um lokaval á þátttakendum.