Um KMÍ
  • 26. febrúar - 22. mars

Young Nordic Producers Club 2024 óskar eftir umsóknum

Umsóknarfrestur: 22. mars

Vinnustofan Young Nordic Producers Club verður haldin í 13. sinn 16. – 19. maí 2024 samhliða kvikmyndahátíðinni í Cannes.

Vinnustofan er ætluð ungum framleiðendum frá Norðurlöndunum til þess að styrkja tengslanet og styðja við alþjóðlega samframleiðslu.

Allt að 24 framleiðendur geta tekið þátt í vinnustofunni. Kvikmyndamiðstöð Íslands er aðili að Young Nordic Producers Club og tekur þátt í ferðakostnaði þeirra sem komast inn. Þátttakendur sjá sjálfir um gistingu á meðan á vinnustofunni stendur.

Fyrir vinnustofunni standa Noemi Ferrer, stofnandi ráðgjafateymisins Yes & Noe, og Tina í Dali Wagner, stjórnandi Filmgreb og forstöðumaður færeysku kvikmyndastofnunarinnar.

Þátttökugjald er 175 € og umsóknarfrestur er til 22. mars.

Hér er hægt að lesa nánar um dagskrána og umsóknarferlið. Tengiliður vinnustofunnar er Tina í Dali Wagner, tina@filmgreb.dk, og berast umsóknir til hennar.