Um KMÍ
Á döfinni

7.9.2022

Á ferð með mömmu hluti af Industry Selects í Toronto

Kvikmyndin Á ferð með mömmu, eftir Hilmar Oddsson, verður sýnd í Industry Selects hluta alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Toronto. Industry Selects fer fram samhliða hátíðinni, dagana 8. - 18. september, þar sem valdar kvikmyndir eru aðgengilegar þeim fagaðilum sem sækja hátíðina.

Myndin segir frá því hvernig alger umskipti verða í lífi manns, þegar móðir hans og helsti áhrifavaldur fellur frá. Með uppáklætt líkið í aftursætinu og hundinn Brésnef við hlið sér tekst hann á hendur ferð þvert yfir landið til að heiðra hennar síðustu ósk. En mamma hefur ekki sagt sitt síðasta.

Leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar er Hilmar Oddsson. Með aðalhlutverk fara Þröstur Leó Gunnarsson, Kristbjörg Kjeld, Tómas Lemarquis og Hera Hilmars. Framleiðandi er Hlín Jóhannesdóttir.

Sjá einnig:

Hildur Guðnadóttir heiðruð í Toronto

Volaða land sýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto