Um KMÍ
Á döfinni

22.4.2022

Berdreymi frumsýnd á Íslandi

Kvikmyndin Berdreymi eftir Guðmund Arnar Guðmundsson er frumsýnd í kvikmyndahúsum hérlendis í dag, þann 22. apríl. Berdreymi var heimsfrumsýnd í febrúar síðastliðinn á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín, þar sem hún hlaut Europa Cinemas Label verðlaunin sem besta evrópska myndin í Panorama flokki.

Berdreymi segir frá Adda, unglingsstrák í Reykjavík sem á skyggna móður. Hann og vinir hans alast upp án eftirlits og nota slagsmál til að leysa ágreininga. Einn daginn ákveður Addi að taka vinalausan strák undir sinn verndarvæng. Djúp vinátta myndast á milli strákanna en ögrandi hegðun þeirra leiðir þá í lífshættulegar aðstæður. Draumkenndar sýnir byrja þá að birtast Adda. Mun nýfengið innsæi hans verða honum og vinum hans leiðarljós í átt að betra lífi eða munu þeir sökkva lengra inní heim ofbeldis?  

Berdreymi trailer

Guðmundur Arnar skrifaði handritið og leikstýrði og með helstu hlutverk fara ungstirnin Birgir Dagur Bjarkason, Áskell Einar Pálmason, Viktor Benóný Benediktsson, og Snorri Rafn Frímannsson, ásamt Anítu Briem, Ólaf Darra Ólafssyni og Ísgerði Gunnarsdóttur. Framleiðandi myndarinnar er Anton Máni Svansson fyrir hönd Join Motion Pictures, en myndin er samstarfsverkefni fimm landa með meðframleiðendur frá Danmörku, Svíþjóð, Hollandi og Tékklandi.