Kári Úlfsson og Clara Lemaire Anspach hljóta viðurkenningar í Les Arcs
Viðurkenningar voru afhentar á samframleiðsluvettvangi kvikmyndahátíðarinnar í Les Arcs í Frakklandi 16. desember.
Kári Úlfsson, framleiðandi hjá Sensor, hlaut þar Producers Network viðurkenninguna. Hana hlýtur hann fyrir verkefnið Sjö hæðir, eftir Erlend Sveinsson. Viðurkenningin veitir aðgöngu að markaði kvikmyndahátíðarinnar í Cannes, Marché du film 2025. Heather Millard framleiðandi hlaut viðurkenninguna árið 2023, fyrir verkefnið Kúluskít eftir Álfrúnu Örnólfsdóttur.
Kári Úlfsson.
Þá hlaut leikstjórinn Clara Lemaire Anspach ArteKino-verðlaunin fyrir Rosa Candida, sem er frönsk kvikmynd byggð á skáldsögunni Afleggjaranum eftir Auði Övu Ólafsdóttur. Clara Lemaire er dóttir Sólveigar Anspach kvikmyndagerðarkonu, sem féll frá árið 2015. Rosa Candida er fyrsta leikna kvikmynd Clöru Lemaire í fullri lengd. Myndin er framleidd af franska framleiðslufyrirtækinu Haut Et Court. Ninna Pálmadóttir hlaut sömu verðlaun árið 2021, fyrir kvikmyndina Tilverur, sem þá var verk í þróun.
Clara Lemaire Anspach.
Íslensk kvikmyndagerð og tónlist er í brennidepli á hátíðinni í ár, þar sem fjöldi verkefna er kynntur á bransahluta hátíðarinnar meðfram sýningum á nýrri og eldri íslenskum kvikmyndum.