Um KMÍ
Á döfinni

27.5.2023

Fár hlýtur sérstaka viðurkenningu í Cannes

Stuttmyndin Fár, eftir Gunni Martinsdóttur Schlüter, hlýtur sérstaka viðurkenningu í flokki stuttmynda á kvikmyndahátíðinni í Cannes.

Myndin var á meðal 11 verka sem sýnd voru í keppnisflokki stuttmynda á hátíðinni í ár. Gullpálmann hlaut Flóra Anna Buda, frá Ungverjalandi, fyrir stuttmyndina 27.

Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á lokadegi kvikmyndahátíðarinnar, 27. maí.

Sjá einnig: Besta hugsanlega byrjun sem stuttmynd getur fengið

Í myndinni tekst einstaklingur á við aðstæður sem reyna á siðferði mannskepnunnar í aftengdum heimi við náttúruna. Gunnur leikstýrir myndinni, skrifar handrit hennar og fer að auki með aðalhlutverkið. Framleiðendur eru Sara Nassim og Rúnar Ingi Einarsson hjá framleiðslufyrirtækinu Norður.