Um KMÍ
Á döfinni

25.9.2019

Hvítur, hvítur dagur framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2020

Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur undir leikstjórn Hlyns Pálmasonar verður framlag Íslands til Óskarsverðlauna á næsta ári. Hlaut hún afgerandi sigur í rafrænni atkvæðagreiðslu um framlag Íslands, en það eru meðlimir í ÍKSA, Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni sem hafa kosningarétt.

Bandaríska kvikmyndaakademían mun velja tíu kvikmyndir á stuttlista í lok árs 2019 og endanlegar tilnefningar á þeim fimm kvikmyndum sem munu keppa um Óskarsverðlaunin fyrir bestu erlendu kvikmynd verða kunngjörðar þann 13. janúar 2020. Óskarsverðlaunin munu svo fara fram í 92. skipti þann 9. febrúar næstkomandi.

Hvítur, hvítur dagur - stikla

Hlynur Pálmason leikstýrði og skrifaði handritið að Hvítum, hvítum degi sem var heimsfrumsýnd á Critics‘ Week, hliðardagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Cannes, í maí sl. Þar var aðalleikari myndarinnar, Ingvar Sigurðsson, jafnframt valinn besti leikarinn fyrir leik sinn í myndinni. Ingvar var einnig valinn besti leikarinn á kvikmyndahátíðinni í Transylvaníu fyrir sama hlutverk, auk þess sem Hvítur, hvítur dagur var valin besta mynd kvikmyndahátíðarinnar í Motovun í Króatíu. Myndin hefur einnig verið valin inn á fjölda annarra stórra hátíða, þ.á.m. Karlovy Vary, Toronto, Busan og Hamptons, og hefur nú þegar verið seld til yfir 30 landa víðsvegar um heiminn.

Hvítur, hvítur dagur er ennfremur sú íslenska kvikmynd sem tilnefnd er til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í ár og keppir þar með við fjórar aðrar myndir frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Þá hefur myndin einnig verið valin sem ein af 46 kvikmyndum í forvali fyrir Evrópsku kvikmyndaverðlaunin í ár.

Myndin hefur hlotið mikið lof og fengið frábæra dóma hjá hinum ýmsu virtu kvikmyndatímaritum á borð við Cineuropa, Screen International og The Hollywood Reporter. Þá hafa gagnrýnendur farið fögrum orðum um leik Ingvars: „Ingimundur er heillandi og áhugaverður karakter, meistaralega dreginn upp af Ingvari Sigurðssyni“ segir í Screen International.

Með sölu og dreifingu erlendis fer sölufyrirtækið New Europe Film Sales (jan@neweuropefilmsales.com) og Sena sér um dreifingu hennar á Íslandi. Myndin var frumsýnd hérlendis þann 6. september síðastliðinn og er hún enn í sýningu. 

Hvítur, hvítur dagur er önnur kvikmynd Hlyns Pálmasonar í fullri lengd á eftir hinni dönsku/íslensku Vetrarbæðrum sem kom út árið 2017 og fór sigurför um heiminn í kjölfar heimsfrumsýningu í aðalkeppni Locarno kvikmyndahátíðarinnar í Sviss í ágúst 2017. Sú mynd hefur unnið til yfir þrjátíu alþjóðlegra verðlauna, þar af níu Robert verðlaun og tvenn Bodil verðlaun í Danmörku. Hlynur Pálmason vann einnig til Dreyer verðlaunanna á síðasta ári fyrir framúrskarandi listræna hæfni.

Hvítur, hvítur dagur er framleidd af Antoni Mána Svanssyni fyrir Join Motion Pictures, en helstu leikarar eru Ingvar Sigurðsson, Ída Mekkín Hlynsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Arnmundur Ernst Backman, Björn Ingi Hilmarsson, Elma Stefanía Ágústsdóttir, Haraldur Ari Stefánsson, Laufey Elíasdóttir, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Sverrir Þór Sverrisson, Þór Tulinius.

Stjórn kvikmyndatöku var í höndum Mariu von Hausswolff og Julius Krebs Damsbo sá um klippingu myndarinnar. Hljóðhönnuður myndarinnar var Lars Halvorsen, leikmyndahönnuður Hulda Helgadóttir og tónlistin er eftir Edmund Finnis.