Um KMÍ
Á döfinni

17.4.2018

Hvítur, hvítur dagur valin á Nordic Distribution Boost

Hvítur, hvítur dagur, næsta kvikmynd leikstjórans Hlyns Pálmasonar í fullri lengd er nú í þróun og er eitt af aðeins sjö verkefnum sem valin hafa verið í nýtt átak hjá Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum sem kallast „Nordic Distribution Boost“. Um er að ræða vinnustofu fyrir reynda framleiðendur og dreifingaraðila sem ætluð er til að styrkja dreifingu annarra og þriðju mynda leikstjóra erlendis og þá sér í lagi á milli Norðurlandanna.

Sjóðurinn býður framleiðanda og dreifingaraðila heimalands valinna mynda á vinnustofuna sem fer fram frá 16. -18. apríl í Helsinki, Finnlandi. Fyrir hönd íslenska verksins eru þangað mætt þau Anton Máni Svansson, framleiðandi hjá Join Motion Pictures og Lilja Ósk Diðriksdóttir, markaðsstjóri hjá Senu.

Hvítur, hvítur dagur vann til ARTE verðlaunanna á CineMart, samframleiðslumarkaði Rotterdam kvikmyndahátíðar og tók einnig þátt í samframleiðslumarkaði Berlinale kvikmyndahátíðar í Berlín, þar sem hún var eitt af einungis tveimur verkefnum sem voru valin í svokallaða Rotterdam-Berlinale Express. 

Áætlað er að Hvítur, hvítur dagur fari í tökur í ágúst á þessu ári.

Fyrsta kvikmynd Hlyns Pálmasonar í fullri lengd, hin dansk/íslenska Vetrarbræður, var heimsfrumsýnd á Locarno kvikmyndahátíðinni í Sviss í ágúst síðastliðnum og hefur síðan þá unnið til samtals 27 verðlauna; 16 alþjóðlegra verðlauna á kvikmyndahátíðum ásamt níu Robert verðlaunum og tveimur Bodil verðlaunum í Danmörku.