Kvikmynd Hlyns Pálmasonar valin til keppni í aðaldagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Cannes
Kvikmyndin Volaða Land eftir Hlyn Pálmason hefur verið valin til þátttöku í keppnisflokknum Un Certain Regard í aðaldagskrá alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Cannes. Myndin verður heimsfrumsýnd á hátíðinni, sem fer fram dagana 17. - 28. maí. Um mikinn heiður er að ræða, enda er Cannes-hátíðin ein sú stærsta og virtasta í heiminum og valið úr þúsundum mynda.
Undir lok 19. aldar ferðast ungur
danskur prestur til Íslands með það að markmiði að reisa kirkju og ljósmynda
íbúa eyjunnar á för sinni. Sérvitur leiðsögumaður leiðir prestinn í gegnum
harðneskjulegt landið á hestbaki ásamt hópi heimamanna. Eftir því sem líður á
ferðalagið missir presturinn smám saman tökin á veruleikanum, ætlunarverkinu,
og eigin siðgæði.
Hlynur leikstýrði og skrifaði handritið að myndinni. Fyrri verk Hlyns hafa verið
heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðunum í Berlín, Cannes, Locarno og Toronto, og
unnið til fjölda verðlauna víðsvegar um heiminn. Stuttmyndin Sjö bátar hóf
ferðalag sitt í Toronto árið 2014, kvikmyndin Vetrarbræður tók þátt í aðalkeppni
Locarno árið 2017, og kvikmyndin Hvítur,
hvítur dagur keppti í Critics' Week á Cannes árið 2019. Þá var
stuttmyndin Hreiður valin til þátttöku á þessu ári í Berlinale Special
hluta Berlínarhátíðarinnar.
Volaða
Land er framleidd af íslenska framleiðslufyrirtækinu Join
Motion Pictures og hinu danska Snowglobe. Framleiðendur eru Anton Máni Svansson, Katrin Pors, Eva
Jakobsen, og Mikkel Jersin. Meðframleiðendur eru Didar Domehri frá Maneki Films
í Frakklandi, Anthony Muir og Peter Possne frá Film I Väst í Svíþjóð, Mimmi Spång
frá Garagefilm í Svíþjóð, og Guðmundur Arnar Guðmundsson frá Join Motion
Pictures, Íslandi.
Með aðalhlutverk fara þeir Elliott
Crosset Hove og Ingvar E. Sigurðsson, og í stærstu
aukahlutverkum eru þau Hilmar Guðjónsson, Jacob Hauberg Lohmann, Vic Carmen
Sonne, og Ída Mekkín Hlynsdóttir. Stjórn kvikmyndatöku var í höndum Mariu von Hausswolff og Julius Krebs
Damsbo sá um klippingu myndarinnar. Frosti Friðriksson var leikmyndahönnuður
myndar, Alex
Zhang Hungtai samdi tónlistina, og Björn Viktorsson sá um hljóðhönnun ásamt Kristian Eidnes
Andersen.
Sölufyrirtæki myndarinnar á alþjóðavísu er New Europe Film Sales. Allar nánari
upplýsingar um Volaða land má finna hér.
Un Certain Regard hluti kvikmyndahátíðarinnar í Cannes var settur á laggirnar árið 1978 og þar er keppt um „Prix Un Certain Regard“. Markmiðið með verðlaununum er að gera kvikmyndagerðarmönnum sem hafa gert kvikmynd sem hefur frumleika og hugrekki að leiðarljósi hátt undir höfði, m.a. með styrk til dreifingar á kvikmyndinni í Frakklandi.
Árið 2021 var kvikmyndin Dýrið eftir Valdimar Jóhannsson valin frumlegasta myndin í Un Certain Regard flokknum og árið 2015 vann kvikmyndin Hrútar, í leikstjórn Gríms Hákonarsonar, til Un Certain Regard verðlaunanna í samnefndum flokki. Það var í fyrsta sinn í 68 ára sögu keppninnar sem íslensk kvikmynd í fullri lengd vinnur til verðlauna á hátíðinni. Íslenskar myndir sem hafa áður verið í Un Certain Regard eru Sódóma Reykjavík eftir Óskar Jónasson árið 1993; fransk/íslenska Stormviðri eftir Sólveigu Anspach árið 2003; dansk/íslenska Voksne mennesker eftir Dag Kára árið 2005.